Greiðslufyrirkomulag
Tekið er á móti greiðslum með kreditkortum í gegnum öruggt greiðslusvæði þar sem kortanúmer eru dulkóðuð. Tekið skal fram að megastore.is geymir ekki né tekur á móti kortanúmerum, allar slíkar upplýsingar fara í gegnum öruggt greiðslusvæði hjá viðurkenndum þjónustuaðila. Einnig er hægt borga með því að millifæra í gegnum banka/heimabanka.
Afgreiðsla á vörum
Eftir að viðskiptavinur hefur gert og gengið frá pöntun á megastore.is fær hann og megastore.is staðfestingu um pöntunina á tölvupósti. Venjulegur afhendingarferill á sendum pöntunum er 1-2 virkur dagur. Öllum pöntunum er dreift með Póstinum og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar.
730 ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá 730 ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Vöruskil
Almennur skilafrestur á vörum eru 14 dagar og er hægt að skila vörum gegn framvísun reiknings/pöntun. Almennur skilafrestur miðast við að varan sé óopnuð og í upprunalegum umbúðum. Ef ske kynni að varan sé gölluð greiðir Megastore.is sendingarkostnaðinn sem fellur til við skil á vöru en annars er sendingarkostnaður á ábyrgð kaupanda. Útsöluvörum er ekki hægt að skila.
Persónuupplýsingar
Megastore.is afhendir hvorki persónuupplýsingar né netföng á þriðja aðila. Þau netföng sem skrá sig á póstlista Megastore.is eru eingöngu notuð til að senda notendum upplýsingar um tilboð og upplýsingar um vörur og/eða viðburði.
Vinsamlegast athugið að allar upplýsingar og verð á vefnum eru birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl.
Lög og varnarþing
Um þjónustuviðskipti gilda skilmálar sem skilgreindir eru í lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og lög um þjónustukaup nr. 42/2000. Varnarþing 730 ehf er skráð með lögheimili að Ásgerði 6, 730 Reyðarfirði.
Almennt um netverslunina
Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti. Megastore.is er rekið af 730 ehf, kt. 601223-0820 og er hægt að hafa samband í gegnum Megastore@Megastore.is.